Við hjá Ræstitækni erum stolt af því að hafa á dögunum hlotið endurvottun Svansins, sem er mikilvæg viðurkenning á þeirri vinnu sem við leggjum í umhverfisvæna og ábyrga ræstingaþjónustu.
Svansvottunin felur í sér strangar kröfur um umhverfisábyrgð, gæði og verklag. Til að viðhalda vottuninni þarf að sýna fram á markvissa vinnu á fjölmörgum sviðum, meðal annars með ábyrgum innkaupum, hóflegri notkun hreinsiefna, vali á umhverfismerktum vörum, fræðslu starfsfólks og reglulegu gæðaeftirliti.
Endurvottunin er mikilvæg staðfesting á því að við séum á réttri leið og endurspeglar jafnframt þann metnað sem við höfum fyrir því að þróa þjónustu okkar enn frekar og bjóða viðskiptavinum okkar faglegar og umhverfisvænar lausnir.
Við lítum á sjálfbærni sem mikilvægan hlut af okkar daglega rekstri og ætlum að halda áfram að gera enn betur, umhverfinu, viðskiptavinum okkar og starfsfólki til heilla.
Við þökkum öllu okkar frábæra starfsfólki fyrir þeirra mikilvæga framlag, fagmennsku og metnað.