Ræstitækni hefur hlotið viðurkenningu Credit Info sem Framúrskarandi fyrirtæki og erum við afar stolt af því að vera í hópi þeirra 2% íslensku fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði viðurkenningarinnar.
Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á þeim trausta grunni sem við höfum byggt starfsemi okkar á og þeim metnaði sem einkennir dagleg störf okkar.
Hjá Ræstitækni leggjum við ríka áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og áreiðanlega þjónustu. Við trúum því að árangur byggist fyrst og fremst á öflugu starfsfólki, góðu samstarfi og því trausti sem viðskiptavinir sýna okkur á hverjum degi.
Viðurkenning Credit Info er okkur bæði mikill heiður og hvatning til að halda áfram á sömu braut, efla starfsemi okkar og byggja áfram upp sterkt og framúrskarandi fyrirtæki til framtíðar.
Að baki viðurkenningarinnar stendur okkar frábæra starfsfólk sem leggur metnað sinn í að þjónusta okkar viðskiptavini með framúrskarandi árangri. Jafnframt þökkum við viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir farsælt samstarf.