Dagana 22.–25. maí fór starfsfólk Ræstitækni í vel heppnaða starfsmannaferð til Sitges á Spáni. Sitges er fallegur strandbær skammt frá Barcelona þar sem hópurinn naut samveru, góðs veðurs og afslöppunar í skemmtilegu umhverfi.
Á laugardeginum var haldið til Barcelona þar sem starfsfólkið fór í hjólatúr um borgina og fékk tækifæri til að skoða helstu kennileiti hennar. Um kvöldið kom hópurinn saman á glæsilegum veitingastað í bænum, þar sem haldinn var kvöldverður þar sem góð stemning ríkti.
Sunnudagurinn var síðan nýttur til að njóta þess sem Sitges og nágrenni hafði upp á að bjóða. Sumir kusu að slaka á við ströndina, aðrir skoðuðu bæinn nánar eða brugðu sér aftur til Barcelona.
Ferðin heppnaðist einstaklega vel og var frábært tækifæri til að efla samheldni og styrkja góðan starfsanda.
Við þökkum öllum fyrir samveruna og hlökkum til næstu ævintýra saman.